Líkamsræktarkonungurinn Arnar Grant hefur varið vikunni í lazyboy-stól á fæðingardeild Landspítalans en honum og eiginkonu hans, Kristínu Hrönn Guðmundsdóttur, fæddist lítil stúlka í vikunni, sem kom í heiminn aðeins fyrr en áætlað var. Fyrir á Arnar tvö börn.
Að sögn Arnars heilsast öllum vel en Smartland óskar fjölskyldunni innilega til hamingju.