Nýtt tímarit, VOLG, sem sérstaklega er ætlað konum, kom út í vikunni en það er Hildur Sif Kristborgardóttir sem er ritstjóri blaðsins. Bæði er blaðið hugsað sem veftímarit en einnig er það gefið út og dreift frítt í 10.000 eintökum. Það er Goggur útgáfufélag sem sér um útgáfu blaðsins.
Linda Pétursdóttir og dóttir hennar, Ísabella Ása Lindudóttir, voru sérstaklega myndaðar saman fyrir nýja blaðið og er myndin strax farin að vekja mikla athygli en það var Ásta Kristjánsdóttir sem tók myndina. Það eru Hildur, Ásta og Sara María Júlíusdóttir sem standa að blaðinu.
Marga spennandi efnisþætti er að finna í nýja blaðinu sem lesa má HÉR.