Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir giftist unnusta sínum Luca Ellis í Árbæjarsafnskirkju kl. 14.00 í dag. Hún geislaði í hvítum kjól og var með hárið uppsett eins og er svo mikið í tísku núna. Kjóllinn minnti á sjötta áratuginn, var blúnduskreyttur að ofan og með víðu pilsi. Við kjólinn var hún í hvítum skóm sem eru bundnir við ökklann.
Móðir brúðarinnar, Svanhildur Jakobsdóttir, mætti í hvítum jakkafötum og skartaði svartri Gucci-tösku í tilefni dagsins. Bróðir brúðarinnar var einnig viðstaddur ásamt konu sinni.