Jakob Frímann Magnússon gekk að eiga unnustu sína, Birnu Rún Gísladóttur viðskiptafræðing, í gær í Hörpu. Nánustu fjölskyldu og vinum var boðið til mikillar veislu í tónlistarhúsinu og var gleðin við völd.
Birna Rún og Jakob Frímann áttu bæði afmæli á brúðkaupsdaginn. Hann varð sextugur og hún fertug.
Birna Rún klæddist skósíðum gullkjól í tilefni dagsins og var í gullskóm við en Jakob Frímann var í vínrauðum jakkafötum. Smartland óskar þeim innilega til hamingju með gærdaginn.