Leikkonan, handritshöfundurinn og framleiðandinn Nanna Kristín Magnúsdóttir geislaði á rauða dreglinum í Cannes þegar hún mætti á kvikmyndina Inside Llewyn Davis, sem er nýjasta mynd Coen-bræðra. Nanna Kristín klæddist fatnaði frá Prada og var með skartgripi frá Breki Design. Á frumsýningunni voru Oscar Isaac, Justin Timberlake, John Goodman og Carey Mulligan svo einhverjir séu nefndir. Nanna Kristín er einn af eigendum Zik Zak Filmworks en meðeigendur hennar eru Þórir Snær Sigurjónsson, Skúli Malmquist, Birgitta Björnssdóttir og Óttó G. Borg.
„Ég útskrifaðist sem handritshöfundur fyrir kvikmyndir og sjónvarp fyrir akkúrat mánuði frá Vancouver Film School í Kanada, þannig að það er skemmtilegt að vera komin á rauða dregilinn í Cannes mánuði síðar og byrjuð að vinna á fullu,“ segir Nanna Kristín í samtali við Mörtu Maríu.
Í Cannes er Nanna Kristín ekki bara að spóka sig á rauða dreglinum því hún þarf að hitta hugsanlega framleiðendur fyrir handrit sitt sem er á framleiðslustigi.