Júlíus Pétur Guðjohnsen varð frægur á einni nóttu eftir að hafa verið
<a href="/folk/frettir/2013/07/11/ryan_gosling_reyndist_vera_julius/">tekinn í misgripum</a>fyrir Hollywood-leikarann Ryan Gosling. Aðspurður segist hann taka þessari auknu athygli af hógværð. „Ég hef ekkert verið að fylgjast með þessari umfjöllun,“ segir Júlíus. Kvenþjóðin getur glaðst yfir því að Júlíus er einhleypur um þessar mundir. Þá eru helgarplön hans enn óráðin. „Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég geri um helgina en ég er í sumarfríi sem stendur.“