Nike-skór Sigmundar Davíðs á uppboði

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fundinum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fundinum. mbl.is/AFP

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mætti með frægustu Nike-skó á Íslandi í útvarpsþáttinn Virka morgna á Rás 2. Andri Freyr Viðarsson stjórnandi þáttarins ætlar að bjóða skóna upp á Facebook-síðu þáttarins. Sá sem býður hæst í skóna eignast ekki bara frægustu Nike-skó á Íslandi heldur styrkir um leið átakið Á allra vörum. Í ár rennur söfnunarféð til geðgjörgæsludeildar Landspítalans.

Sigmundur Davíð vakti heimsathygli þegar hann hitti Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í Stokkhólmi en vegna sýkingar í fæti gat sá fyrrnefndi ekki farið í spariskónum og endaði hann í sitthvorum skónum.

Rúv.is greinir frá því að hæsta boð í skóna sé 125.000 krónur en uppboðið stendur yfir til hádegis. Hægt er að senda inn tilboð á Fésbókarsíðu Virkra morgna.

Sigmundur Davíð mætti á fundinn í ósamstæðum skóm.
Sigmundur Davíð mætti á fundinn í ósamstæðum skóm.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál