„Þetta yndislega fallega fagfólk dúkkaði upp á dyraþrepinu hjá mér með gjafir, upplestur, húrrahróp og knús. Hlýjaði hjartanu svo sannarlega. Kærar þakkir fyrir frábært samstarf, þið öll,“ sagði Ólafur Stephensen, fráfarandi ritstjóri Fréttablaðsins, en starfsfólk blaðsins mætti heim til hans í Fossvoginn rétt í þessu.
Starfsfólk 365 færði Ólafi meðal annars mynd eftir Árna Björn Guðjónsson af nafna hans, Ólafi Thors. Báðir voru þeir jafnhárprúðir.