Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen vakti athygli á frumsýningu stuttmyndarinnar No. 5 the Film á mánudaginn en hún mætti í sætum míníkjól og setti sig í ótal stellingar fyrir myndavélina.
Stuttmyndin No. 5 the Film er þriggja mínútna löng og er einskonar auglýsing fyrir No. 5 ilmvatnið frá Chanel. Fyrirsætur og fleira fólk úr tískubransanum mætti á frumsýningu myndarinnar.
Nicole Kidman, stjarna myndarinnar, lét þó ekki sjá sig á frumsýningunni. Þess má geta að hún fékk einn og hálfan milljarð króna í laun fyrir að leika í myndinni.