Ljósmyndarinn Nína Björk Gunnarsdóttir er komin á fast. Hinn heppni heitir Aron Karlsson fjárfestir og er sonur Kalla og Esterar í Pelsinum.
Nína Björk hefur gert það ágætt sem ljósmyndari en hún flutti heim til Íslands 2013 eftir að hafa búið um nokkurra ára skeið í Lúxemborg. Síðan hún kom heim hefur hún unnið sjálfstætt og myndað fyrir tímarit og auglýsingar.