Frosti Logason er gamall, grjótharður rokkhundur sem ýmsa fjöruna hefur sopið. Hann spilaði á yngri árum sínum m.a. í rokksveitinni Mínus ásamt „bassafantinum“ og fleirum flúruðum meisturum.
Í dag er hann harður þjóðfélagsrýnir á útvarpsstöð nokkurri þar sem hann hikar ekki við að hakka í sig þá sem hann og félagi hans, Máni Pétursson, telja hafa misstigið sig í samfélagi manna. Skiptir þá engu máli hvort um er að ræða stjórnmálamenn, trúarofstækismenn, embættismenn eða einhverja aðra; allir eru grillaðir af stakri fagmennsku.
En Frosti á sér mjúka hlið. Hann var fyrir nokkru skotinn af örvum Amors og það mjög hraustlega og hefur síðan þá svifið um á bleiku skýi. Frosti hefur nú beðið unnustunnar, Helgu Gabríelu Sigurðardóttur, matreiðslunema á Vox og trúlofaði parið sig í Boston í Bandaríkjunum. Smartland Mörtu Maríu óskar hinum nýtrúlofuðum til hamingju með ástina.