Elísabet Englandsdrottning fagnaði á dögunum níræðisafmæli sínu, en hún lætur það alls ekki aftra sér að sinna skyldum sínum enda mætir hún á hvern opinberan viðburðinn á fætur öðrum.
Tengdadóttir Elísabetar, Camilla Parker Bowles, virðist nú vera farin að sækja innblástur í klæðaburð drottningarinnar enda var klæðnaður þeirra á dögunum furðu svipaður. Báðar skörtuðu konurnar afar sumarlegum grænbláum kápum og höttum í stíl. Þess að auki báru þær báðar forláta perlufestar og eyrnalokka við.
Það var þó ekki allt, því báðar klæddust hinar konunglegu dömur hvítum hönskum, auk þess sem þær skörtuðu báðar afar svipuðum nælum.
Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail.