Arnór Ingvi Traustason er eini landsliðsmaðurinn sem er á lausu. Hann er atvinnumaður í knattspyrnu og spilar fyrir IFK Norrköping í Svíþjóð. Hann er einn af tuttugu og þremur sem var valinn í A-landsliðshóp Íslands til að keppa á EM í Frakklandi.
Á dögunum tók Smartland saman lista yfir eftirsóknarverðustu piparsveina landsins og var Arnór Ingvi að sjálfsögðu á þeim lista.