Það varð uppi fótur og fit á veitingastaðnum Gló í Faxafeni í gær þegar leikkonan Gwyneth Paltrow mætti þangað með börnin sín tvö. Hún var á staðnum um hádegisbil í gær og lét lítið fyrir sér fara. Koma hennar á staðinn vakti þó athygli. Í morgun mætti hún svo aftur og fékk sér te.
Paltrow er mikill sælkeri og matarlistarmaður og hefur gefið út bækur tengdar mataræði og eldamennsku. Það kemur því ekki á óvart að hún hafi ákveðið að sækja stað eins og Gló heim.