Baltasar Kormákur þurfti að kveðja „pabbalíkamann“ en Gísli Örn Garðarsson þurfti að „kjöta sig upp“. Þeir fluttu lögheimili sitt í World Class á Seltjarnarnesi til að undirbúa sig fyrir tökur á Eiðnum. Þeir voru í þjálfun hjá Ásmundi Símonarsyni einkaþjálfara sem gaf ekkert eftir. Á tímabili æfðu þeir tvisvar á dag.
Auk þess þurftu þeir að láta af ýmsu áti. Baltasar Kormákur hætti að borða ís á hverju kvöldi og Gísli Örn sleppti Coca Puffsinu á laugardögum.