Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og kærasti hennar, Sigurður Ingi Sigurpálsson, eignuðust dóttur 1. september. Móður og barni heilsast vel og sagði þingmaðurinn á Facebook-síðu sinni að lífið gæti ekki verið betra.
Unnur Brá á tvö börn fyrir sem eru fædd 2004 og 2008.
Smartland óskar Unni Brá og Sigurði Inga hjartanlega til hamingju með dótturina.