Dansarinn Erna Ómarsdóttir kemur nakin fram í kosningamyndbandi Vinstri grænna. Þar er listamaðurinn Ragnar Kjartansson í forgrunni en á bak við má sjá Ernu með grímu. Ragnar, sem er einn farsælasti listamaður samtímans, er í framboði fyrir Vinstri græn og hefur notað hugvit sitt í myndbandagerð til að laða að kjósendur. Myndbandið þótti hins vegar of gróft og var fjarlægt af Facebook-síðu Vinstri grænna vegnar nektar Ernu Ómarsdóttur.
Frétt af mbl.is: Myndband VG fjarlægt vegna nektar
Hægt var að horfa á myndbandið á Youtube.com en það hefur nú verið fjarlægt.