Fréttakonan Lóa Pind Aldísardóttir er á lausu. Lóa er ein af þeim sem glóir af þokka á sjónvarpsskjáum landsmanna. Bleikt.is greinir frá þessu:
„Lóa Pind Aldísardóttir– Lóa Pind er á lausu. Já þú last rétt – glæsikvendið skarpgreinda gengur laust. Þeir sem hafa fylgst með Lóu gegnum árin vita að hún hefur sjaldan eða aldrei verið glæsilegri – árin eru að fara sérstaklega vel með hana. Aukvisar ættu þó að halda sig fjarri, því næsta víst er að þessi kona mun ekki sætta sig við neinn miðlungsmann,“ segir á vefnum.
Lóa bjó með rithöfundinum Sigfúsi Bjartmarssyni um áratugaskeið og eiga þau einn son saman.