Ástin er svo sannarlega í loftinu í fótboltaheiminum en Smartland greindi frá því í síðustu viku að Aron Einar Gunnarsson myndi ganga í hjónaband 17. júní næstkomandi.
Nú berast fréttir af því að Jón Daði Böðvarsson landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður með Wolves, sem er enskt B-deildarlið, og María Ósk Skúladóttir háskólanemi séu trúlofuð. Parið sagði frá því á Facebook-síðum sínum í gær.
Parið býr í Englandi og njóta lífsins saman.