Rithöfundurinn Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir leikkona eiga von á barni. Hann sagði frá þessu í útvarpsþættinum Harmageddon rétt í þessu. Í útvarpsþættinum sagði hann frá því að barnið kæmi í heiminn 22 árum eftir að hann eignaðist frumburð sinn.
Mikael Torfason er búinn að vera upptekinn síðustu átta til níu mánuði við að kafa ofan í fátækt á Íslandi og hefur gert útvarpsþætti um málefnið sem eru á dagskrá Rás 1 á laugardögum.
Í þáttunum kafar hann ofan í hvers vegna fólk festist í fátækragildru og hvað sé til ráða?
Smartland óskar Mikael og Elmu Stefaníu hjartanlega til hamingju með stækkandi fjölskyldu.