Birgir Örn Guðjónson eða Biggi lögga eins og flestir þekkja hann er kominn í frí frá lögreglunni en hann byrjaði að fljúga sem flugþjónn með Icelandair á mánudaginn. Birgir ákvað að taka sér pásu frá lögreglustarfinu í sumar, Smartland náði tali af Bigga þegar hann var á leið í sitt fyrsta stopp til New York.
„Þetta var í rauninni bara svona hálfgerð skyndiákvörðun. Ég var búinn að vera lengi í löggunni og kannski kominn tími á smá pásu,“ segir Biggi um ástæðuna fyrir því að hann sótti um að verða flugþjónn. „Ég rakst bara á auglýsinguna og og ákvað að slá til og sendi inn umsókn.“
Birgir hafði einungis farið í tvö flug þegar samtalið átti sér stað. „Starfið er skemmtilegra en ég bjóst við og miklu meira krefjandi. Ég vissi náttúrulega ekki mikið en það kemur pínu á óvart. Biggi segir að starfið sé í raun öryggisstarf dulbúið sem þjónustustarf og því ætti hann nú að vera á heimavelli.
Reynslan úr lögreglunni nýtist Bigga vel. „Lögreglumenn eru vanir að takast á við aðstæður sem enginn annar vill takast á við og í svona flugvélum getur allt komið upp. Maður er tilbúinn í allt. Þú hringir ekkert í lögguna, maður þarf bara að takast á við það þá og þegar.“
Enn sem komið er hefur Biggi þó ekkert þurft að nýta neitt úr lögregluskólanum í nýja starfinu annað en góð mannleg samskipti. Hann vill að minnsta kosti ekki kannast við að hafa þurft að taka á neinum flugdólgum þegar hann er spurður út í það.
„Þetta er áhugaverður heimur, áhugavert fyrir mig þar sem í löggunni eru meirihlutinn karlmenn en í þessu starfi eru meirihlutinn konur, segir Biggi og bætir því við að erfitt sé að útskýra hver munurinn sé á vinnustöðunum. „Það er gjörólíkur vinnustaðamórall hjá flugliðum og lögreglufólki,“ segir Biggi að lokum og er mjög spenntur fyrir sumrinu þrátt fyrir að fá ekkert sumarfrí þetta sumarið.