Marín Manda Magnúsdóttir, flugfreyja hjá Wow air, var glæsileg á árshátíð Kviku banka sem haldin var í Edinborg um nýliðna helgi. Hún mætti með nýjum kærasta. Hann heitir Hannes Frímann Hrólfsson og er framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku banka.
Árshátíðin var hin glæsilegasta en boðið var upp á dýrindis mat og veitingar og svo kom Friðrik Dór og söng fyrir gestina og líka bróðir hans Jón Jónsson.
Þar sem árshátíðin fór fram í Edinborg var karlpeningurinn gjarnan klæddur að sið heimamanna eða í skotapilsum.