Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason fékk heldur betur krúttlega kveðju frá fjölskyldunni sinni áður en hann hélt til Rússlands til að spila á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Strákarnir okkar fóru út til Rússlands á laugardaginn en Ari birti kveðjuna á Instagram-reikningi sínum um helgina.
Ari spilar með belgíska liðinu Lokeren. Hann er giftur Ernu Kristínu Ottósdóttur og saman eiga þau þrjú börn. Dóttir Ara, Camilla Ósk, vakti athygli á síðasta stórmóti sem faðir hennar spilaði á en hún var aðeins nokkurra mánaða þá. Camilla var með bleik heyrnartól á leik Íslands gegn Austurríki og náðu ljósmyndarar myndum af Ara heilsa dóttur sinni í leikslok.