„Voða spennt og stolt af Hannesi“

Hannes Þór Halldórsson og Halla Jónsdóttir.
Hannes Þór Halldórsson og Halla Jónsdóttir.

Halla Jónsdóttir er 32 ára tveggja barna móðir með Bs gráðu í sálfræði. Hún er gift Hannesi Þór Halldórssyni markmanni íslenska landsliðsins og eru þau búsett í Danmörku. Halla er orðin mjög spennt fyrir HM og ætlar ekki að láta sig vanta til Rússlands. 

Hvernig leggst HM i þig? 

„HM leggst mjög vel í mig, ég er bara mjög spennt og ánægð að það sé loksins komið að þessu. Við erum búin að stefna að og bíða eftir þessu lengi á okkar heimili. Ég held að þeim eigi bara eftir að ganga vel þeir hafa alveg sýnt það undanfarið að þeir eiga heima þarna og geta náð ótrúlegum úrslitum.“

Ferðu með til Rússlands?

„Já, ég ætla að fara með til Rússlands og fara allavega á leikina þrjá í riðlinum. Snædís vinkona mín kemur með mér út og svo fer tengdapabbi líka á fyrsta leikinn. Svo er ég svo heppinn að börnin okkar eiga svo frábærar ömmur og afa að þau ætla að hugsa um þau heima á Íslandi meðan ég fer.“

Hvaða áhrif hefur HM á fjölskyldulífið?

„Þetta hefur auðvitað mikil áhrif á fjölskyldulífið þegar Hannes er í burtu svona lengi og það mæðir auðvitað aðeins meira á mér á meðan varðandi krakkana. En við erum orðin nokkuð sjóuð þegar kemur að ferðalögum og aðskilnaði í einhvern tíma og rúllum því bara upp. Ég  fæ líka mikla hjálp frá fjölskyldunni þegar við erum á Íslandi. Svo erum við auðvita líka bara voða spennt og stolt af Hannesi.“

Nærðu að halda ró þinni á leikjum?

„Svona já og nei. Það hefur verið þannig á síðustu leikjum og reyndar á EM líka að ég er með báða krakkana með mér og hef ekki haft tíma til að stressa mig en þegar öll athyglin er á leiknum. Ég tala nú ekki um svona stóra leiki þá verð ég mjög stressuð og það getur verið erfitt að tala við mig.“

Hvernig leggst sumarið í þig?

„Sumarið leggst bara rosa vel í mig þetta verður mikið flakk út um allt á okkur sem verður rosa gaman. Svo verður æðislegt að koma heim og hitta fjölskylduna og vini í íslensku sumri sem verður vonandi komið.“

Hjónin Hannes Þór og Halla gengu í hjónaband í desember. …
Hjónin Hannes Þór og Halla gengu í hjónaband í desember. Hér eru þau með börnin sín tvö.
Hjónin eru búsett í Danmörku.
Hjónin eru búsett í Danmörku.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál