Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og sálfræðingurinn Haukur Ingi Guðnason gengu í heilagt hjónaband á Ítalíu um helgina. Þau hafa verið par í yfir tuttugu ár og eiga saman tvö börn. Smartland er á því að þetta sé hjónavígsla aldarinnar, svo falleg var athöfnin.
Ragnhildur Steinunn birti fallegar myndir frá athöfninni á samfélagsmiðlum í gær þar sem sést að hjónin hafa verið gefin saman undir berum himni í návist sinna nánustu.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju og vill hrósa ljósmyndaranum Írisi Dögg Einarsdóttur fyrir að hafa náð undurfallegum augnablikum hjónavígslunnar undir björtum himni um helgina.