Kolbrún Vaka Helgadóttir kynningarfulltrúi RÚV og Hilmar Guðjónsson leikari eignuðust son 2. ágúst. Þetta er þriðja barnið en fyrir áttu þau hvort sitt afkvæmið.
Móður og barni heilsast vel en búið er að nefna drenginn Pétur.
Hjónin gengu í hjónaband í fyrra og síðan þá hefur hamingjan ekki gert neitt annað en að stækka og dafna. Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með soninn.