Leikkonan Angie Harmon varð 46 ára í vikunni. Hún hélt upp á afmælið í sundfatnaði sem virðist vera það nýjasta á meðal hinna frægu í dag.
Stjörnurnar í Hollywood virðast vera að ná árangri með að stöðva tímann og eldast ótrúlega hægt. Sem dæmi um þetta er Madonna sem varð 60 á dögunum. Tom Cruise sem virðist lítið eldast og Jennifer Lopez svo dæmi sé tekin.
Harmon hefur aldrei litið betur út. Hún hefur margsýnis sagt að hún hugsi vel um mataræðið. Sé í fráhaldi frá sykri og sterkju. Hún er dugleg að hjóla og fara út að ganga. Hún er dugleg að gera skemmtilega hluti og nýtur þess að vera á besta aldri í góðu formi.