Þórunn Ívarsdóttir bloggari og Harry Sampsted eignuðust dóttur 9. september. Móður og barni heilsast vel þrátt fyrir langa og erfiða fæðingu. Stúlkan var 3.810 g og 54,5 cm þegar hún kom í heiminn.
Þórunn heldur úti bloggsíðunni thorunnivars.is sem hefur notið mikilla vinsælda. Hún komst í fréttir fyrr á árinu þegar hún varð andlit Essie-naglalakksins á Íslandi.