Playboy-fyrirsætan Arna Bára Karlsdóttir gekk í hjónaband með unnusta sínum, Heiðari Árnasyni, í Las Vegas á dögunum.
Parið hefur verið samferða í lífinu um nokkurra ára skeið og eiga þau þrjú börn. Athöfnin fór fram í Las Vegas að stjörnustíl og var það Elvis nokkur Presley sem gaf þau saman. Hjónin eru núna búsett í Svíþjóð en áður rak hún hárgreiðslustofu í Smáralind.