Öll þekkjum við einhvern sem er svolítið sér á parti. Þessa manneskju sem á allt eða hefur smekk fyrir öðruvísi hlutum. Það þarf ekki að vera svo erfitt að finna skemmtilegar gjafir fyrir þennan einstakling, enda er gríðarlegt úrval af skemmtilega öðruvísi hlutum hér á landi.
Beikonveski. Það kostar 590 kr. og fæst í Dogma.
Darth Vader-sokkar. Þeir kosta 1290 kr. og fást í Dogma.
Bjalla fyrir þá sem vilja góða þjónustu. Hún kostar 750 kr. og fæst í Hókus Pókus.
Þröngur jólasveinabúningur er alltaf flottur. Hann kostar 8.900 kr. og fæst í Hókus Pókus.
Þeir sem vilja kynnast elskhuga sínum betur ættu að kaupa þetta spil. Það kostar 9.900 kr. og fæst á Blush.is.
Fullkomin gjöf fyrir fólk með flatlús eða mikinn kláða. Hún er ekki bara klóra heldur líka skóhorn. Hún kostar 990 kr. og fæst í Dogma.
3 D pin art. Kostar 2.990 kr. og fæst í Dogma.
Apalampi úr Hrím. Hann kostar 32.990 kr.
Love in Bloom-vasi frá Seletti. Hann kostar 10.990 kr. í Hrím.
Ferðamál fyrir kaffiþyrsta sérvitringa. Það kostar 1.590 kr. og fæst í Dogma.
Sérvitringar elska ís sokka. Þeir kosta 1.290 kr. í Dogma.