Bárður Sigurgeirsson húðlæknir hjá Húðlæknastöðinni og Linda Björg Árnadóttir fatahönnuður og eigandi Scintilla gengu í hjónaband í gær.
Hjónavígslan sjálf fór fram í Hallgrímskirkju og svo var slegið upp veislu í Gamla bíói á eftir. Linda Björg klæddist glæsilegum bleikum brúðarkjól sem náði niður á miðjan kálfa og var í rauðum pinnahælum við. Kjóllinn er hannaður af Roksöndu Ilincic.
Bárður var klæddur í glæsileg svört jakkaföt og var með slaufu í tilefni dagsins. Linda Björg sagði í samtali við Smartland í vor að brúðkaupið yrði látlaust og fallegt.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ráðahaginn.