Formúla sem klikkar ekki fyrir verðandi konung og drottningu

Vilhjálmur Prins og Katrín hertogaynja af Cambridge.
Vilhjálmur Prins og Katrín hertogaynja af Cambridge. AFP

„Katrín og Vilhjálmur, hertogahjónin af Cambridge, hafa undanfarna daga verið í konunglegri heimsókn í Pakistan. Pakistan er eitt af þeim löndum sem eru hluti af Breska samveldinu og mikilvægt að rækta sambandið milli ríkjanna með konunglegum heimsóknum. Heimsóknin hefur verið frekar óhefðbundin en lítið hefur verið gefið upp um dagskrá hertogahjónanna fyrir fram af öryggisástæðum. Ein heimsóknin var í krikketskóla í borginni Lahore og tóku hertogahjónin þar einn leik. Af myndunum að dæma skemmtu hjónin sér konunglega, og er svona heimsókn klassísk fyrir hertogahjónin og klikkar seint,“ segir Guðný Ósk Laxdal í sínum nýjasta pistil á Smartlandi:



Það er skemmtilegt að segja frá því að í næstum hverri konunglegri ferð sem Vilhjálmur og Katrín fara í erlendis er einhvers konar íþróttaheimsókn þar sem þau bregða á leik. Þau eru bæði mikið fyrir íþróttir og full af keppnisskapi. Þau njóta sín mikið í íþróttum og í þessum heimsóknum má sjá hvernig formlegheitin í kringum þau verða aðeins minni.

Í raun má segja að íþróttaheimsókn fyrir Vilhjálm og Katrínu sé formúla sem klikkar ekki. Myndirnar eru alltaf skemmtilegar en oft er mikið um góða og skrítna svipi. Það sést að þau eru afslappaðari og eru að skemmta sér. Fólk sér þau sem venjulegt fólk og tengir þar af leiðandi meira við þau. Eins og ég segi, formúla sem klikkar ekki fyrir verðandi konung og drottningu.

Fleiri eftirminnilegar íþróttaheimsóknir eru t.d. hokkí-heimsókn í Kanada árið 2011. Það var fyrsta konunglega ferðin þeirra eftir að þau giftu sig og urðu hertogahjónin af Cambridge. Árið 2012 heimsóttu þau líka meðal annars Tuvalu og tóku þar nokkur spor með innfæddum. Árið 2014 fóru þau í heimsókn til Nýja-Sjálands og spiluðu þar einmitt líka krikket, en þá spilaði hertogaynjan á hælum!


Sama ár heimsóttu þau Frakkland þar sem þau horfðu á ruðningsleik og fyrir leikinn kíktu þau á krakka sem æfa íþróttina og tóku smá þátt.


Árið 2014 fóru þau í stutta heimsókn til Bandaríkjanna og horfðu á körfuboltaleik, en sú heimsókn var líka eftirminnileg en það var þá sem hertogahjónin hittu Beyoncé og Jay-Z. Árið 2016 heimsóttu þau Indland og Bútan og léku krikket, prófuðu smá fótbolta og í Bútan prófuðu þau einnig bogfimi. Allt tilefni sem hafa verið mjög eftirminnileg og skemmtileg.

AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál