Listakonan Sunneva Ása Weisshappel er listamaður októbermánaðar í hverfisblaðinu Laugardalur, Háaleiti og Bústaðir. Athygli vekur að portrait-ljósmynd af Sunnevu tók Sóllilja Baltasarsdóttir en Sóllilja er dóttir Baltasars Kormáks, leikstjóra og leikara.
Sunneva og Baltasar voru sögð vera að rugla saman reytum fyrr á árinu. Sást meðal annars reglulega til þeirra tveggja í sundi á höfuðborgarsvæðinu. Sunneva hefur greinilega ekki bara kynnst leikstjóranum vel undanfarin misseri heldur einnig dóttur hans sem sannast á myndinni.