Sjónvarpsstjarnan Eva Laufey Kjaran birti einlægan áramótaannál á Instagram á nýársdag. Segir hún árið 2019 hafa verið lærdómsríkt ár en ekki án áfalla. Eva Laufey lýsir því meðal annars hvernig hún þurfti að vinna í sjálfri sér eftir að hún fann fyrir svo óþægilegum verkjum að hún hélt að hún væri að fá hjartaáfall.
„Þetta ár var líka mjög krefjandi fyrir mig þar sem ég eyddi stórum hluta ársins að finna mig upp á nýtt eftir óþægilega lífsreynslu í mars þegar ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall. Eftir margar rannsóknir og ófáar spítalaheimsóknir var niðurstaðan einfaldlega sú að líkaminn væri að biðja um meiri ró og andlega hliðin væri í ólagi. Kvíði og streita kom mjög aftan að mér og það var ekki auðvelt að sætta sig við það þegar allt „á“ að vera í lagi og maður upplifir sig svo vanmáttugann. Ég gat lengi vel ekki hreyft mig eins og ég vildi út af verkjum og hræðslu við of mikinn hjartslátt, ég þurfti að stoppa sjónvarpsupptökur og anda í poka með hjálp samstarfsfólks til þess að koma mér í gegnum verkefnin. Mig langaði að hrista þetta af mér í einum grænum en það gekk ekki og ég fór loksins og fékk viðeigandi aðstoð. Nú mörgum mánuðum seinna og sálfræðimeðferð að baki líður mér loksins eins og ég sjálf á ný – það er besta tilfinning sem ég hef fundið í langan tíma. Mér tókst að komast í gegnum þetta verkefni með fagfólki, fjölskyldunni minni og vinum mínum sem hafa staðið þétt við bakið á mér sem og skilningsríku samstarfsfólki og yfirmönnum. Ég get aldrei fullþakkað það hvað ég á góða að,“ skrifar Eva Laufey sem segir að þetta hafi þó líka verið mögulega sitt besta ár til þessa.
Hér fyrir neðan má sjá pistil Evu Laufeyjar í heild sinni.