Konunglegir skandalar árið 2020

Árið byrjaði illa hjá fleiri konungsfjölskyldum en þeirri bresku.
Árið byrjaði illa hjá fleiri konungsfjölskyldum en þeirri bresku. AFP

„Þó svo að árið sé tiltölulega nýbyrjað má segja að þegar kemur að konunglegum fréttum sé nóg að gerast. Undanfarnar vikur hefur mikið gengið á sem má teljast sem nokkuð slæm byrjun á nýjum áratugi. Breska konungsfjölskyldan hefur þar verið hvað háværust en fleiri konungsfjölskyldur í Evrópu hafa verið að takast á við slæmar fréttir,“ seg­ir Guðný Ósk Lax­dal í nýj­um pistli á Smartlandi.  

Danmörk

Í janúar kom það í ljós að Friðrik krónprins og Mary krónprinsessa eiga stóran fjallaskála í Sviss sem enginn vissi af. Skálinn komst upp þegar það var tilkynnt að krónprinsfjölskyldan myndi flytja til Sviss í nokkrar vikur meðan börnin þeirra ganga þar í alþjóðlegan skóla. Málið varð frekar stórt í Danmörku en margir í ríkisstjórninni gagnrýndu að þau hafa átt skálann í mörg ár án þess að hann hafi nokkurn tímann verið gefinn upp í neinum fjárhagsáætlunum. 

Friðrik krónprins og Mary krónprinsessa.
Friðrik krónprins og Mary krónprinsessa. AFP

Belgía

Undanfarinn áratug eða svo hefur fyrrverandi konungur Belgíu, Albert II, neitað því að hafa eignast dóttur með hjákonu sinni. Málið hefur verið lengi fyrir rétti og voru niðurstöður úr DNA-rannsókn birtar í janúar. Kom þá í ljós að Delphine Boël er í raun og veru dóttir konungsins, og er því fjórða barn Alberts. Þessi gífurlega barátta og afneitun fyrrverandi konungs á sínu eigin barni kemur ekki vel út fyrir konungsfjölskylduna í Belgíu. 

Albert II, fyrrverandi konungur Belgíu.
Albert II, fyrrverandi konungur Belgíu. AFP

Noregur

Norska konungsfjölskyldan hefur þurft að takast á við talsverð áföll undanfarnar vikur. Ari Behn tók eigið líf yfir hátíðirnar og var jarðarförin haldin í byrjun árs. Athöfnin var mjög tilfinningarík og átakanleg. Stuttu eftir það var konungurinn lagður inn á spítala og tók Hinrik krónprins við embættinu meðan faðir hans var veikur. Það eru þó góðar fréttir að Haraldi konungi virðist líða mun betur í dag og er kominn aftur til starfa. 

Spánn

Spænska konungsfjölskyldan missti ættingja í janúar. Eldri systir Juan Carlos I konungs, sem er faðir núverandi konungs, dó 8. janúar. Pilar var mjög elskuð á Spáni. Það er líka erfitt að líta fram hjá því að nú hafa reglur um erfðaröð sem betur fer breyst og í dag hefði Pilar orðið drottning, en ekki bróðir hennar. 

Svíþjóð

Það er nú langoftast rólegt hjá sænsku konungsfjölskyldunni, en þó kom það upp á að Estelle prinsessa lenti í slysi í skíðaferð á þessu ári og fótbrotnaði. Það er mikið lagt upp úr því að konungsfólk sé við góða heilsu og öruggt, enda á það að vera tákn landsins. Þetta á við sama hvaða aldur er um að ræða. Estelle er sögð við góða heilsu og á góðum batavegi. 

Bretland

Það hefur varla farið fram hjá mörgum að Harry og Meghan sögðu af sér sem starfandi ættingjar konungsfjölskyldunnar. Tímasetning þessarar tilkynningar var mikið áfall fyrir konungsfjölskylduna og varð til þess að mikil óvissa myndaðist, sem er að mörgu leyti enn þá í gangi. Ofan á þetta var á dögunum tilkynnt um að Peter Phillips, sonur Önnu krónprinsessu, og kona hans Autumn séu að skilja. Það er töluvert um skilnaði í þessari fjölskyldu, en það gerir ekki gott fyrir þá ímynd sem konungsfjölskyldan á að sýna. Þó er vert að nefna að Peter telst ekki innan konungsfjölskyldunnar og ber engan konunglegan titil. 

Harry og Meghan.
Harry og Meghan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál