Ástrós Rut Sigurðardóttir er komin með nýjan kærasta, en hún missti eiginmann sinn, Bjarka Má Sigvaldason, á síðasta ári eftir langa baráttu við krabbamein. Ástrós greindi frá nýja sambandinu á Instagram í gær.
Sá heppni er Davíð Örn Hjartarson en hann á 7 ára son úr fyrra sambandi. Í færslu sinni á Instagram segir Ástrós að hún viti að Bjarki standi með henni, enda sé hann í hjarta hennar og huga alla daga.
Ástrós og Bjarki fóru í fjölda viðtala við fjölmiðla á síðustu árum en Bjarki háði langa baráttu við krabbameinið. Hann lést aðeins 32 ára gamall en þau Ástrós eignuðust eina dóttur, Emmu Rut Bjarkadóttur.
„Eftir stærsta hjartasár lífs míns ákvað ég að standa upp, rétta úr mér og biðja Lífið um tvennt: Að fá annað tækifæri í hamingju. Og að fá að upplifa fjölskyldulífið sem mig hefur alltaf dreymt um.
Aldrei hefði ég trúað því að svarið kæmi svona fljótt en þessi draumur af manni er svo sannarlega kominn til að vera. Stóri plúsinn er að það fylgir einn 7 ára prins sem ég dýrka og dái. Ég geng því inn í nýjan áratug mjög bjartsýn og blússandi hamingjusöm.
Ég veit að Bjarki stendur með mér enda er hann í hjarta og huga mér alla daga og passar upp á okkur stelpurnar. Hann er feginn og þakklátur að við mæðgur erum ánægðar og í góðum höndum,“ skrifar Ástrós í færslu sinni á Instagram.