Leikkonan Lori Loughlin og eiginmaður hennar Mossimo Giannulli hafa náð að selja rándýrt hús sitt í Bel Air hverfinu í Los Angeles. Húsið fór á sölu í janúar en í millitíðinni hefur fallið dómur í háskólasvindlsmálinu og Loghlin og Giannulli bæði á leið í fangelsi.
Ásett verð á eigninni var 28,7 milljónir bandaríkjadala (um 4 milljarðar íslenskra króna) í janúar en samkvæmt heimildum Variety keypti Justin Mateen, einn af stofnendum Tinder, húsið á 18 milljónir bandaríkjadala nú fyrir skömmu eða um 2,5 milljarða íslenskra króna.
Hjónin keyptu húsið árið 2015 á 14 milljónir bandaríkjadala og réðust í miklar framkvæmdir í kjölfarið. Húsið er 1114 fermetrar að stærð og í því eru sex svefnherbergi, níu baðherbergi og sundlaug má finna í garðinum.
Loughlin og Gianulli hlutu dóm í háskólasvindlsmálinu svokallaða. Þau játuðu fyrir dómara í lok maí að hafa greitt háar fjárhæðir til að koma dætrum sínum tveimur inn í háskóla. Loughlin þarf að sitja í fangelsi í tvo mánuði og greiða 150 þúsund Bandaríkjadali í sekt. Auk þess þarf hún að inna af hendi eitt hundrað klukkustundir í samfélagsþjónustu. Giannulli þarf að sitja í fangelsi í fimm mánuði, greiða 250 þúsund Bandaríkjadali í sekt og inna af hendi 250 tíma af samfélagsþjónustu.