Sumarið í sumar er heldur óvenjulegt. Bannað er að djamma lengur en til ellefu á kvöldin, í það minnsta niðri í miðbæ. Það setur einhleypt fólk á þessu landi í erfiða stöðu og neyðist það til að reiða sig á aðrar leiðir til að kynnast framtíðarmaka sínum. Til að auðvelda landanum leitina að ástinni hefur Smartland tekið saman lista yfir það helsta sem er í boði á markaðnum í dag.
Gurrý Torfadóttir hefur slegið í gegn á sviði líkamsræktar. Gurrý er með bein í nefinu eins og áhorfendur kynntust í þáttunum Biggest Loser Ísland. Hún rekur sína eigin líkamsrækt og veit svo sannarlega hvað hún syngur þegar heilbrigður lífsstíll er annars vegar.
Sigga Dögg kom nýlega á markaðinn eftir að hún skildi við eiginmann sinn. Sigga Dögg er bráðgáfuð og uppfull af visku um alls konar málefni. Sigga Dögg er mikill húmoristi og hefur gaman af lífinu.
Tónlistarkonan Bríet hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum. Hún er nýlega á lausu en hún og kærasti hennar hættu saman í vor. Bríet semur ástarljóð sem bræða og syngur eins og engill.
Birgitta Líf er ung kona á uppleið. Hún er snillingur í markaðsmálum og er með allt sitt á hreinu. Hún hefur gaman af ferðalögum og hreyfingu. Birgitta Líf er „brand ambassador“ fyrir kampavínsframleiðandann Möet og því oft með ískalda kampavínsflösku í hendi.
Kristín Pétursdóttir leikkona er nýlega á lausu eftir að hún og barnsfaðir hennar Brynjólfur Löve hættu saman. Það er alltaf mikið stuð í kringum leikkonuna sem er dugleg að ferðast og skemmta sér með fjölskyldu og vinum.
Lilja er án efa ein eftirsóknarverðasta einhleypa konan á Íslandi í dag. Hún er hestakona fram í fingurgóma og býr að hluta til í Mekku hestamanna, Skagafirði. Hún var áður gift Baltasar Kormáki leikara og leikstjóra en þau skildu árið 2019.
Helga hefur verið áberandi í íslensku hönnunarlífi en hún stofnaði íslenska barnafatamerkið iglo+indí fyrir áratug og var merkið selt um allan heim á meðan best lét. Helga er mikill fagurkeri og húmoristi sem elskar lífið.
Svanhildur Nanna hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Svanhildur Nanna er í fantaformi og ef hún er ekki á crossfit-æfingum er hún á ferð og flugi og þeytist á fjallahjóli um sveitir landsins.
Áslaug Arna dómsmálaráðherra er án efa ein af eftirsóttustu einhleypu konum landsins. Hún er með sterkar skoðanir og er ekki feimin við að segja þær. Áslaug er vinur vina sinna, skemmtileg og með hjartað á réttum stað. Hún æfir crossfit af miklu kappi og er mikil hestakona.
Helga Kristín er sviðsstjóri lögfræðisviðs Háskólans á Bifröst. Hún er hreystin uppmáluð og hefur unum af ferðalögum og útivist.
Hanna Stína hefur komið víða við í innanhússhönnun en hún lærði fagið á Ítalíu. Hún hefur hannað fjölmörg framúrskarandi heimili og fyrirtæki og er með sinn einstaka stíl. Hanna Stína kann að lifa lífinu til fulls og hefur gaman af ferðalögum. Hennar nýjasta skrautfjöður er staðurinn Duck and Rose sem nýlega var opnaður í miðbæ Reykjavíkur.
Auður skildi við eiginmann sinn fyrir um tveimur árum og hefur meira að segja skrifað bók um skilnaðarferlið. Hún er án efa einn af bestu rithöfundum landsins en hún hefur hlotið mikið lof fyrir bækur sínar Fólkið í kjallaranum, Tilfinningabyltinguna og Ósjálfrátt. Þar að auki er hún pistlahöfundur á Kjarnanum.
Ágústa Eva er kraftmikil einhleyp kona. Hún hefur verið á töluverðu flakki um heiminn en hún fer með hlutverk í HBO-seríunni Beforeigners. Þættirnir hafa slegið í gegn og er 2. sería í vinnslu. Ágústa Eva er búsett í Hveragerði þar sem hún nýtur lífsins.
Sigríður Thorlacius er ein af glæsilegustu dægurlagasöngkonum landsins. Hún sló í gegn með Hjaltalín en er jafnframt þekkt fyrir að hafa vakið athygli á mörgum af helstu söngperlum Íslands. Hún er einstakur túlkandi og listamaður sem er jafnvíg á margar tónlistarstefnur.
Þórunn Antonía er svo sannarlega ofurkona eins og hún syngur um í laginu sínu sem hún gaf út á síðasta ári. Þórunn er mjög sjálfstæð og ákveðin kona. Hún flutti einhleyp og ólétt til Hveragerðis þar sem hún er nú búsett.
Inga Tinna er svo sannarlega mikill fengur. Hún er verkfræðingur og hefur stofnað tvö fyrirtæki, Dineout og Icelandic Coupons. Hún hefur einnig unnið sem flugfreyja hjá Icelandair. Hún er vinmörg, skemmtileg, hress og klár kona sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.