Íslensku stjörnurnar, Högni Egilsson söngvari í Hjaltalín og Snæfríður Ingvarsdóttir leikkona, eru líklega búin að finna ástina á ný eftir að leiðir skildi síðasta vor.
Til þeirra sást á fimmtudagskvöld þar sem þau héldust í hendur yfir pastaréttum á einum af betri veitingastöðum bæjarins.
Parið trúlofaði sig 2017 en svo komu brestir í sambandið og leiðir skildi um tíma. Nú virðast þau hins vegar búin að finna taktinn á ný.
Smartland óskar þeim góðs gengis á brautum ástarinnar!