Halldór Halldórsson forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. og fyrrverandi borgarfulltrúi og Sigríður Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju eru trúlofuð. Hann bað hennar í gær á 45 ára afmælisegi hennar.
Halldór var oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn um nokkurra ára skeið áður en hann varð forstjóri. Hann er ættaður frá Ísafirði og mikill kajakmaður eins og lesendur Smartlands komust að 2013 þegar hann bauð undirritaðri í siglingu.
Sigríður er guðfræðingur að mennt og hefur unnið ýmis störf um ævina. Hún var lengi blaðamaður áður en hún varð framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina og ráðahaginn!