Í gærkvöldi stöðvaði lögreglan teiti í Ásmundarsal í Reykjavík en þar hafði reglum ekki verið fylgt. Ásmundarsalur hefur leyfi til að vera með opið til klukkan 22.00 á kvöldin en á ellefta tímanum var lögreglan kölluð til. Fréttir herma að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir innanhússráðgjafi, hafi verið meðal gesta.
Eigendur Ásmundarsalar eru Heiða Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson. Ásamt því að reka Ásmundarsal eru þau eigendur Fossa. Þau eru þekkt partífólk og hafa teiti þeirra oft ratað í fréttir. Frægt er þegar Heiða hélt upp á 50 ára afmæli sitt í fyrra klædd geimfarabúningi og Björgólfur Thor Björgólfsson yfirgaf afmælið í þyrlu. Hann hafði verið boðinn í tvö teiti sama daginn og þurfti að komast á sem stystum tíma milli staða.
Sigurbjörn og Heiða eru vinmörg og dugleg að gera sér glaðan dag. Þennan örlagaríka 23. desember byrjaði Heiða til dæmis daginn á fjallgöngu enda leggur hún mikla áherslu á að lifa heilbrigðu lífi. Með í för voru nánir vinir úr innsta hring.