Sigurjón Kjartansson grínisti og framleiðandi er kominn á fast. Sú heppna heitir Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir og er snyrtifræðingur og nuddari.
Parið er búið að vera saman síðan á síðasta ári og segja þeir sem til þekkja að þau séu mjög lukkuleg saman.
Sigurjón er þekktur fyrir húmor sinn en í gegnum tíðina hafa hann og Jón Gnarr búið til ódauðlegt grín sem Tvíhöfði en Sigurjón var líka í Fóstbræðrum sem mörkuðu þáttaskil í gríni.
Smartland óskar parinu innilega til hamingju með ástina!