Hannes Steindórsson fasteignasali og einn af eigendum Lindar fasteignasölu er búinn að finna ástina. Sú heppna heitir Karen Ósk Þorsteinsdóttir og er flugfreyja og naglasérfræðingur.
Parið hnaut um hvort annað á haustmánuðum og hefur síðan þá notið lífsins. Um þessar mundir eru þau stödd á Kanaríeyjum þar sem þau hafa hjólað um eyjuna þvera og endilanga.
Smartland óskar þeim velfarnaðar á bleika skýi ástarinnar.