Nýtt ofurpar hefur litið dagsins ljós

Guðmundur Hafsteinsson og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir eru nýtt par.
Guðmundur Hafsteinsson og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir eru nýtt par. Ljósmynd/Samsett

Guðmundur Hafsteinsson fjárfestir og fyrrverandi yfirmaður hjá Google og Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir forstjóri eru nýtt par. Bæði eru þau farsæl í starfi. Hann var endurkjörinn í stjórn Icelandair á föstudaginn. Guðlaug Kristbjörg er forstjóri Stekks fjárfestingarfélags sem hefur verið farsælt.

Guðmundur hefur verið einn af eftirsóttustu piparsveinum landsins eins og Smartland greindi frá síðasta sumar. Nýlega var greint frá því fyrirtækið Fractal 5 hefði sótt þriggja milljón dala fjármögnun, en Guðmundur er stofnandi og forstjóri félagsins. Þá hefur Guðmundur verið stjórnarformaður Icelandic startups, en hann hætti þar nýlega.

Auk þess að vera forstjóri Stekks er Guðlaug stjórnarformaður Límtrés vírnets, Securitas og Kviku eignastýringar. Þá bauð hún sig fram til formennsku stjórnar Samtaka iðnaðarins í fyrra án árangurs.

Guðmundur Hafsteinsson er kominn á fast.
Guðmundur Hafsteinsson er kominn á fast. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina! 

Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir.
Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda