Kristín Pétursdóttir leikkona og Sindri Þórhallsson verslunarstjóri í fataversluninni Húrra Reykjavík eru hætt saman að því fram kemur á vef DV. Kristín greindi frá því í hlaðvarpsþætti Hæ hæ – Ævintýri Hjálmars og Helga í mars að hún ætti kærasta.
Stuttu eftir að Kristín opinberaði sambandsstöðu sína greindi Smartland frá því að Sindri væri sá heppni. Kristín og Sindri voru búin að vera sambandi í þó nokkurn tíma áður en Kristín greindi frá sambandi þeirra.
Kristín er útskrifuð leikkona frá Listháskóla Íslands og lék meðal annars í Eurogarðinum. Hún var áður í sambandi með áhrifavaldinum Brynjólfi Löve og eiga þau saman soninn Storm. Þau hættu saman fyrir rúmlega ári.
Smartland óskar Kristínu og Sindra góðs gengis.