Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, hefur fundið ástina. Sú heppna heitir Margrét Júlíana Sigurðardóttir. Hún stýrir vöruþróun og markaðssetningu Netskrafls á erlendum mörkuðum. Hún er líka stofnandi Mussila og fyrrverandi framkvæmdastjóri þess en fyrirtækið framleiðir margverðlaunuð öpp fyrir tónlistarkennslu.
Parið skráði sig í samband á Facebook í gær en upp á síðkastið hefur sést til þeirra á mannamótum. Þau voru til dæmis á VOX í síðustu viku þar sem þau skáluðu í kampavíni frá Kampavínsfélaginu á sérstökum Kampavínsdögum sem haldnir eru reglulega á VOX.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ráðahaginn!