Tónlistarkonan Klara Elíasdóttir, sem er hvað þekktust fyrir feril sinn með hljómsveitinni Nylon, og bardagaíþróttakappinn Jeremy Aclipen eru nýtt par. Jeremy fagnaði 36 ára afmæli sínu í gær og sýndi Klara frá afmælisdeginum á Instagram.
Samkvæmt heimildum Smartlands hafa Klara og Jeremy verið að hittast um nokkurt skeið og hafa þau nú opinberað sambandið á samfélagsmiðlum.
Parið fór í hið margrómaða Sky Lagoon í Kópavogi í gær og endaði afmælisdaginn á veitingastaðnum Fjallkonunni með fjölskyldu og vinum.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju!