Alþingiskonan Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Rafal Orpel gengu í hjónaband á miðvikudaginn. Athöfnin fór fram í garðinum heima hjá þeim.
Þórhildur segir frá brúðkaupinu í færslu á Facebook. „7.7. er dagurinn sem við byrjuðum saman fyrir þremur árum og því réttur dagur til þess að játast hvort öðru. Ég er ótrúlega hamingjusöm eiginkona enda ekki hægt að hugsa sér betri eiginmann,“ skrifar Þórhildur. Hún segir að þau hafi ekki getað beðið með að gifta sig en stefni á að halda brúðkaupsveisluna á næsta ári.
Inga Auðbjörg Straumland gaf þau saman en hún er trúlofuð Helga Hrafni Gunnarssyni, þingmanni Pírata. Þórhildur þakkaði henni fyrir að stökkva til með engum fyrirvara.
Það má með sanni segja að þetta hafi verið árið þeirra Þórhildar og Rafals en í febrúar síðastliðnum eignuðust þau sitt fyrsta barn, soninn Anton Örn Orpel.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju!