Tanja Ýr og Egill hætt saman

Egill Fannar Halldórsson og Tanja Ýr Ástþórsdóttir hafa ákveðið að …
Egill Fannar Halldórsson og Tanja Ýr Ástþórsdóttir hafa ákveðið að halda hvort í sína áttina. Ljósmynd/Þorgeir Ólafsson

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og viðskiptamaðurinn Egill Fannar Halldórsson eru hætt saman samkvæmt öruggum heimildum Smartlands.

Parið ákvað að slíta sambandi sínu fyrir nokkrum vikum síðan en þau hafa lítið sýnt frá hvort öðru á samfélagsmiðlum sínum undanfarna mánuði. Þá eru þau hætt að fylgja hvort öðru á Instagram.

Egill og Tanja trúlofuðu sig á ferðalagi um Mexíkó árið 2014 en þau hafa ferðast mikið saman undanfarin ár. Þau settu íbúð sína í 101 Reykjavík á leigu í byrjun þessa árs á meðan þau ferðuðust um heiminn. 

Fluttu þau þá tímabundið til Tyrklands og dvöldu þar í nokkra mánuði. Eftir það fór Tanja til Bandaríkjanna en Egill heim til Íslands. Hann er nú á ferðalagi í Tyrklandi en Tanja er hér heima.

Smartland óskar þeim velfarnaðar á þessum tímamótum! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda