Í lífsins ólgusjó er ekki einfalt mál að finna sér lífsförunaut. Smartland Mörtu Maríu lagðist í rannsóknarvinnu og fann út hvaða glæsikonur eru einhleypar um þessar mundir.
Íris Tanja Flygenring
Leikkonan Íris Tanja Í. Flygenring er á lausu. Íris hefur gert það gott í sjónvarpi allra landsmanna undanfarnar vikur en hún fer með hlutverk í þriðju þáttaröð af Ófærð. Íris fór einnig á kostum í þáttaröðinni Kötlu á Netflix fyrr á þessu ári. Íris er mikill töffari, bæði í þáttunum og raunheimum, og mikill grínisti líka.
Kamilla Einarsdóttir
Rithöfundurinn og bókavörðurinn Kamilla Einarsdóttir er ein flottasta kona landsins. Kamilla sendi frá sér skáldsöguna Tilfinningar eru fyrir aumingja nú fyrir jólin en það er hennar önnur skáldsaga.
Inga Tinna Sigurðardóttir
Inga Tinna Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri Dineout. Inga Tinna er margt til listanna lagt og hefur mörg fjölbreytt áhugamál. Hún er einnig snillingur í að velja veitingastaði til að snæða á og hefur ferðast víða um heiminn.
Ragnheiður Birgisdóttir
Ragnheiður Birgisdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu og bókmenntafræðingur, er á lausu. Ragnheiður er mikill snillingur sem kann að halda uppi stuðinu. Hún er með meistaragráðu í bókmenntafræði frá Kaupmannahafnarháskóla og kann vel við sig í Kóngsins Kaupmannahöfn. Ragnheiður elskar að hreyfa sig, fara í leikhús og síðast en ekki síst að lesa góða bók.
Íris Björk Tanya Jónsdóttir
Íris Björk Tanja Jónsdóttir skartgripahönnuður og eigandi Vera Design er á lausu. Íris er einstök smekkmanneskja sem hefur unun af því að gera upp íbúðir og húsnæði. Í kringum Írisi er alltaf allt upp á tíu og aldrei farin hálf leið í neinu.
Anna Lilja Lýðsdóttir
Anna Lilja Lýðsdóttir er fædd og uppalin á Seltjarnarnesi en hún er hagfræðingur að mennt. Hún starfar í dag sem verkefnastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Controlant en var áður einn af lykilstarfsmönnum Arctic Adventure. Anna Lilja er frábær á skíðum og elskar fátt meira en að renna sér í fjallinu. Þá er hún dugleg að leika sér á fjallahjóli yfir sumartíminn og ferðast um landið.
Kara Kristel Á. Signýjardóttir
Samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel sló fyrst í gegn með kynlífsbloggi fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur hún látið til sín taka á samfélagsmiðlum þar sem hún gefur góð ráð varðandi sambönd, snyrtivörur og allt á milli himins og jarðar.
Margrét Valdimarsdóttir
Margrét Valdimarsdóttir er doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri. Margrét hefur látið til sín taka í samfélagsumræðunni undanfarin ár.
Helga Kristín Jóhannsdóttir
Helga Kristín Jónsdóttir er verkfræðingur að mennt og starfar sem verkefnastjóri hjá Marel. Helga er mikill töffari sem finnst fátt skemmtilegra en að renna sér á snjóbretti, leika sér á fjallahjóli, fara í fjallgöngur og stunda stangveiði.
Sólveig Eiríksdóttir
Solla Eiríks er án efa ein sú eftirsóknarverðasta á landinu. Hún er líka einn besti kokkur á landinu og hefur lifað og hrærst í heilsuheiminum undanfarin 30 ár. Solla skildi fyrr á árinu en hún var gift Elíasi Guðmundssyni.
Auður Jónsdóttir
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir er einstaklega skemmtileg og gáfuð kona. Hún hefur sent frá sér fjölda bóka undanfarin ár og í ár sendir hún frá sér skáldsöguna Allir fuglar fljúga í ljósið.
Tanja Ýr Ástþórsdóttir
Áhrifavaldurinn, athafnakonan og fyrrum fegurðardrottningin Tanja Ýr er einhleyp um þessar mundir. Tanja er snjöll og sniðug viðskiptakona og rekur nú þrjú fyrirtæki. Hún heldur einnig námskeið um markaðssetningu og stofnun fyrirtækja. Tanja elskar ferðalög og er mikið á flakki um heiminn.
Þórunn Antonía Magnúsdóttir
Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir er á lausu. Þórunn er flutt til Reykjavíkur frá Hveragerði. Þórunn er hress og skemmtileg og treður reglulega upp á bestu börum borgarinnar. Það er alltaf líf og fjör í kringum Þórunni.
Elín Signý W. Ragnarsdóttir
Elín Signý er dansari hjá íslenska dansflokknum og mikil ævintýramanneskja. Hún er bæði brimbretta- og snjóbrettakona og er dugleg að sýna frá ferðalögum sínum á vinsælli Instagram-síðu sinni. Það er alltaf stuð og stemning í kringum Elínu Signýju sem er alltaf tilbúin í að hoppa í næsta foss.
Þórunn Pálsdóttir
Fasteignasalinn og verkfræðingurinn Þórunn Pálsdóttir er í lausagangi. Þórunn er metnaðarfull og klár kona. Hún er mikill fagurkeri og kann svo sannarlega að gera fallegt í kringum sig.